Samhygð, samtök um sorg og sorgarviðbrögð á Akureyri og nágrenni voru stofnuð í desember 1989 af hópi fólks sem
hafði kynnst sambærilegum félagsskap í Reykjavík og fann að það var mikil þörf fyrir svona sjálfshjálparhópa á
landsbyggðinni. Frá upphafi voru fundir haldnir hálfsmánaðarlega allt árið í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Á veturna var reynt
að vera með fyrirlestur í hverjum mánuði um hin ýmsu efni. Nú starfar félagið einu sinni í mánuði frá september til
maí og er áætlað að vera með fyrirlestra/erindi í hvert skipti. Markmið samtakanna er að veita þeim stuðning sem koma að leita
sér hjálpar eftir ýmis sorgaráföll er upp koma í lífinu, hvort heldur það er ástvinamissir, alvarleg veikindi, fötlun,
atvinnumissir, skilnaður, gjaldþrot eða hvað annað. Það hjálpar heilmikið að geta talað við einhvern í trúnaði um sorgir
sínar og áhyggjur og vita að sá hinn sami hefur upplifað sömu tilfinningar og efasemdir um framtíðina, en getur nú litið glaður fram
á veginn.
Fundir Samhygðar eru í fundarsal Safnaðarheimilis Akureyrarkirkju, gengið inn hjá kapellunni.
Opið hús/fundirnir byrja kl. 20.00 og eru auglýstir í Dagskránni daginn áður.
Stjórn Samhygðar veturinn 2009 - 2010 eru:
Kristín Sveinbjörnsdóttir, formaður,
sími 462-6965 og 847-4250, netfang kittyes@simnet.is
Hugrún Stefánsdóttir, gjaldkeri.
Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir.
Annetta Maria Norbertsdóttir.
Varastjórn:
Ólöf Tryggvadóttir og sr. Arnaldur Bárðarson.
Veffang Samhygðar: www.kirkjan.is/eyjafjardarprofastsdaemi
Opið hús/fundir vetrarins 2009 - 2010
10. september, Opið hús, spjall og kaffi.
8. október, afmæli Samhygðar, 20 ár frá stofnun samtakanna. Erindi, Dr. Sigríður Halldórsdóttir, ávarp, Sigrún Björk
Jakobsdóttir, söngur, spjallþáttur, veitingar og fyrirbænastund.
12. nóvember, Eyrún K. Gunnarsdóttir, sálfræðingur á FSA, með erindið "Börn og sorg".
10. desember, Guðrún Eggertsdóttir, sjúkrahúsprestur, með erindið "Að afmarka sorginni tíma í hátíðarhöldunum".
14. janúar, innlegg fundarins "Að horfa fram á við eftir nýliðna hátíð, opið hús, spjall og kaffi.
11. febrúar, Sigmundur Sigfússon með erindið "Sjálfsvíg".
11. mars, auglýst síðar.
8. apríl, Kristín S. Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur, með erindið "Að þreyja sorgina".
6. maí, Kristján Már Magnússon, sálfræðingur, með erindið "Að vinna með sorgina".
Allir velkomnir á fundi. Engin félagsgjöld en öllum velkomið að styrkja félagið með fjárframlögum á reikning 0162-26-003607, kt.
640191-2289.





